Nota strikamerkjaskanna
Skanni les strikamerki og sendir það í Plúsinn eins og það hefði verið slegið inn á lyklaborð.
Yfirfarið við kerfið 19.10.2026
- USB-skanni: stingdu í samband. Engin uppsetning þarf.
- Bluetooth-skanni: paraðu hann við tækið eins og lyklaborð.
- Myndavél: í lagertalningu geturðu notað myndavél símans.
Algeng vandamál
- Ekkert gerist þegar ég skanna.
- Smelltu einu sinni á kassaskjáinn svo hann fái fókusinn og reyndu aftur. Prófaðu að skanna inn í textaskjal til að sjá hvort skanninn virki yfirleitt.
