Telja lager í síma
Þú telur það sem raunverulega er til og Plúsinn ber það saman við skráða birgðastöðu.
Yfirfarið við kerfið 19.10.2026
- Hver getur gert þetta
- Heimildin „Birgðatalning og flutningur“.
Hvar finn ég þetta?
Stjórnborð → Birgðir → TalningByrjaðu talningu
Veldu starfsstöð eða lager og hvort telja eigi allt eða einn vöruflokk.
Veldu blinda talningu ef þú vilt
Þá sér sá sem telur ekki skráða stöðu og lætur hana ekki hafa áhrif á sig.
Skannaðu vöru
Varan opnast með talnaborði. Sláðu inn fjöldann og ýttu á Vista. Skannaðu svo næstu vöru.
Engin strikamerki?
Leitaðu eftir heiti, SKU eða strikamerki.
Skoðaðu samantekt
Sýnir taldar vörur, ótaldar vörur, vörur með mismun og verðmæti mismunar.
Sendu talninguna
„Talning send“ birtist.
Gott að vita: Ef netið dettur út geymir síminn talninguna og sendir hana þegar samband næst aftur. Ekki loka vafranum fyrr en allt hefur samstillst.
Athugaðu: Birgðastaðan breytist ekki fyrr en talningin hefur verið samþykkt. Þangað til er hægt að leiðrétta tölur.
