Kassakerfi

Kassakerfi fyrir íslensk fyrirtæki

Plúsinn er kassakerfi sem keyrir í vafranum. Þú afgreiðir á spjaldtölvu, síma eða tölvu og salan skilar sér strax í birgðir, skýrslur og bókhald.

Hvað gerir kassakerfi?

Kassakerfi skráir hverja sölu, tekur við greiðslu, gefur út kvittun og uppfærir birgðastöðu. Gott kassakerfi gerir þetta hratt við afgreiðsluborðið og gefur eigandanum skýra mynd af rekstrinum eftir á.

Afgreiðsla sem starfsfólk lærir fljótt

Afgreiðsluskjárinn er hannaður fyrir snertiskjá: stórir hnappar, vöruflokkar og leit. Vöru má bæta í körfu með því að ýta á hana, leita að nafni eða skanna strikamerki.

  • Strikamerki skönnuð með myndavél eða handskanna
  • Afslættir á einstakar vörur eða alla körfuna
  • Greitt með korti á Teya-posa, Netgíró eða reiðufé
  • Kvittun prentuð eða send í tölvupósti

Engin sérstök kassatölva

Plúsinn þarf hvorki uppsetningu né sérhæfðan kassabúnað. Þú getur notað spjaldtölvu eða tölvu sem þú átt fyrir og bætt við kvittunarprentara og posa þegar þarf.

Salan tengist restinni af rekstrinum

Hver sala lækkar birgðastöðu, birtist í söluskýrslum og fer í bókhaldið. Starfsfólk stimplar sig inn í sama kerfi og hvert hlutverk fær aðeins þær heimildir sem það þarf.

Algengar spurningar

Á hvaða tækjum keyrir kassakerfið?

Plúsinn keyrir í vafra á spjaldtölvu, síma og tölvu. Ekki þarf að setja upp sérstakan hugbúnað.

Get ég tengt greiðsluposa?

Já. Plúsinn tengist Teya-posum þannig að upphæðin fer beint á posann og salan klárast þegar greiðslan er samþykkt.

Get ég flutt inn vörulistann minn?

Já. Vörur má flytja inn úr Excel, CSV, TSV, JSON eða XML skrá.
Kassakerfi fyrir íslensk fyrirtæki – Plúsinn