Hárgreiðslustofur

Kassakerfi fyrir hárgreiðslustofur

Á hárgreiðslustofu fara saman tímabókanir, þjónusta og sala á hárvörum. Plúsinn heldur utan um þetta allt á einum stað.

Bókanir og afgreiðsla í sama kerfi

Bókanir birtast á dagatali eftir degi og viku. Þú sérð hvaða þjónusta er bókuð og hjá hverjum, og getur skráð nýja bókun beint úr kassanum. Viðskiptavinir fá staðfestingu og áminningu í tölvupósti daginn áður.

Þjónusta og vörur á sama reikningi

Klipping, litun og hárvörur fara á sama reikning. Vörurnar lækka í birgðum og þjónustan birtist í söluskýrslum eftir starfsmanni.

Starfsfólk og vinnutími

Hver starfsmaður hefur eigin innskráningu og heimildir. Stimpilklukkan skráir vinnutíma og grunnur fyrir laun er reiknaður út frá honum.

Algengar spurningar

Geta viðskiptavinir bókað sjálfir?

Plúsinn tengist bókunarkerfinu Búkk, þar sem viðskiptavinir bóka tíma á netinu. Bókanirnar birtast í Plúsnum.
Kassakerfi fyrir hárgreiðslustofur og snyrtistofur – Plúsinn