Smásala

Kassakerfi fyrir verslanir

Í verslun snýst kassakerfið jafn mikið um vörurnar og um afgreiðsluna. Plúsinn heldur utan um vörulista, birgðir og sölu í einu kerfi.

Vörulisti sem auðvelt er að halda við

Vörur fá flokka, strikamerki, verð og VSK-þrep. Allan vörulistann má flytja inn úr skrá og raða vörum á kassaskjánum eftir sölu, stafrófsröð eða handvirkt.

Birgðir sem stemma

Birgðastaðan lækkar við hverja sölu og vörutalning er gerð í síma með því að skanna hverja vöru. Kerfið varar við þegar vara er að klárast.

  • Birgðastaða eftir starfsstöð
  • Vörutalning með skanna eða myndavél
  • Innkaup og móttaka vöru
  • Viðvaranir um lága stöðu

Fleiri en ein verslun

Fyrirtæki með fleiri verslanir rekur þær í sama kerfi, með birgðum eftir starfsstöð og sameiginlegu söluyfirliti.

Algengar spurningar

Get ég talið lagerinn í símanum?

Já. Vörutalning er gerð í síma: þú skannar vöru, slærð inn fjölda og vistar. Birgðum er ekki breytt fyrr en talningin er samþykkt.
Kassakerfi fyrir verslanir og smásölu – Plúsinn