Birgðastaða í rauntíma
Staðan uppfærist við hverja sölu, í hverri starfsstöð. Þú sérð birgðavirði, hvað selst og hvað liggur á lager.
Vörutalning í símanum
Talning er gerð í síma eða spjaldtölvu. Þú skannar vöru, slærð inn fjöldann og heldur áfram. Mismunur er sýndur áður en talningin er samþykkt og birgðum breytt.
- Skanni eða myndavél
- Blind talning ef þess er óskað
- Talning heldur áfram þó netsamband detti út
- Samþykki áður en birgðum er breytt
Innkaup og flutningur
Skráðu móttöku vöru frá birgjum og færðu vörur milli starfsstöðva. Fyrir veitingastaði er hægt að halda utan um hráefni í gegnum uppskriftir.
Algengar spurningar
Er birgðakerfið innifalið í verðinu?
- Já. Birgðastjórnun er hluti af Plúsnum og kostar ekki aukalega.
