Afgreiðslukerfi

Afgreiðslukerfi sem flýtir fyrir röðinni

Afgreiðslukerfi á að vera fljótlegt fyrir starfsfólk og þægilegt fyrir viðskiptavininn. Hér er farið yfir afgreiðsluflæðið í Plúsnum, frá því að vara er valin þar til kvittunin er komin.

Afgreiðsla skref fyrir skref

Starfsmaður velur vöru úr flokki, leitar eða skannar strikamerki. Karfan sýnir samtölu með VSK. Þegar greitt er með korti fer upphæðin beint á Teya-posann og salan klárast sjálfkrafa þegar greiðslan er samþykkt.

  • Vöruflokkar og flýtiflokkar fyrir algengustu vörur
  • Sérsniðin sala fyrir vörur sem eru ekki í vörulista
  • Afsláttur á vöru eða körfu, með heimildastýringu
  • Kvittun prentuð eða send með tölvupósti

Heimildir og öryggi

Hver starfsmaður skráir sig með PIN-númeri. Aðgerðir eins og stórir afslættir eða bakfærslur geta krafist samþykkis yfirmanns, og allar aðgerðir eru skráðar.

Margir kassar, ein heild

Hægt er að hafa fleiri kassa og starfsstöðvar í sama kerfi. Sala allra kassa birtist í sameiginlegu yfirliti og birgðir eru haldnar eftir starfsstöð.

Algengar spurningar

Get ég notað handskanna?

Já. Handskannar sem tengjast sem lyklaborð virka beint, og einnig er hægt að skanna með myndavél.

Er hægt að prenta kvittanir?

Já. Plúsinn styður Star (CloudPRNT) og Epson kvittunarprentara og getur einnig sent kvittun í tölvupósti.
Afgreiðslukerfi fyrir verslanir og þjónustu – Plúsinn