Selja vöru, skref fyrir skref
Grunnaðgerð kassans: vara í körfu, greiðsla, kvittun.
Yfirfarið við kerfið 19.10.2026
- Hver getur gert þetta
- Allir með heimildina „Skrá sölu“.
Áður en þú byrjar
- Kassalota er opin ef fyrirtækið notar kassauppgjör.
Hvar finn ég þetta?
KassiFinndu vöruna
Ýttu á flokk og síðan á vöruna, skannaðu strikamerki eða leitaðu.
Athugaðu körfuna
Varan birtist í körfunni með magni 1. Ýttu aftur á vöruna til að fá 2.
Breyttu magni eða fjarlægðu
Notaðu + og − í körfulínunni. Ruslatáknið („Fjarlægja“) tekur línuna út.
Ýttu á Greiða
Veldu greiðslumáta
Kort: upphæðin fer á posann. Reiðufé: sláðu inn hvað viðskiptavinur rétti þér í „Móttekið (kr.)“ og kerfið reiknar hvað á að gefa til baka.
Bíddu eftir „Sala tókst“
Þá er salan vistuð og birgðir lækka.
Dæmi: Dæmi
Tvær samlokur á 1.990 kr. = 3.980 kr. Viðskiptavinur réttir 5.000 kr. Þú gefur 1.020 kr. til baka.
Hvað gerist þegar þú vistar?
Salan birtist í Pantanir, telst með í kassauppgjöri og birgðir lækka um magnið sem selt var.
Hvernig sérðu að þetta tókst?
Opnaðu Stjórnborð → Pantanir. Nýjasta salan er efst.
Algeng vandamál
- Varan birtist ekki á kassanum.
- Athugaðu að varan sé virk og í flokki sem er ekki falinn. Sjá „Vöruflokkar“.
- Kortagreiðsla svarar ekki.
- Ekki reyna aftur strax. Fylgdu bilanaleitinni „Greiðsluposi svarar ekki“.
