Taka við kortagreiðslu

Upphæðin er send á greiðsluposann og kassinn bíður eftir svari.

Yfirfarið við kerfið 19.10.2026

Áður en þú byrjar

  • Posi er tengdur kassanum. Sjá „Tengja Teya-posa“.
  1. Ýttu á Greiða og veldu kort

    Glugginn „Kortagreiðsla“ opnast og bíður.

  2. Viðskiptavinur greiðir á posanum

  3. Þegar greiðsla er samþykkt lokast glugginn og „Sala tókst“ birtist

Varúð: Ef greiðsla virðist hanga skaltu aldrei senda nýja greiðslu strax. Karfan er geymd þar til greiðsla er samþykkt. Athugaðu fyrst á posanum hvort fyrri greiðslan fór í gegn. Annars getur viðskiptavinur verið rukkaður tvisvar.

Algeng vandamál

Greiðslu hafnað.
Biddu viðskiptavin um annað kort eða annan greiðslumáta. Karfan er óbreytt.
Posinn sýnir samþykkt en kassinn bíður enn.
Bíddu nokkrar sekúndur. Kassinn spyr posann aftur sjálfkrafa. Ef ekkert gerist skaltu fylgja bilanaleitinni fyrir greiðsluposa.

Tengdar greinar

Hjálpaði þessi grein?