Kassauppgjör og lok dags

Í lok vaktar telur þú reiðuféð og berð það saman við það sem kerfið reiknar að eigi að vera í skúffunni.

Yfirfarið við kerfið 19.10.2026

Af hverju
Svo mistök eða rýrnun uppgötvist sama dag en ekki við ársuppgjör.
Hver getur gert þetta
Heimildin „Framkvæma kassauppgjör“. Til að sjá uppgjör annarra þarf „Skoða uppgjör annarra“.
Vænt
Upphafsfé + reiðufjársala − endurgreiðslur í reiðufé − úttektir + innborganir.
Talið
Það sem þú taldir í skúffunni.
Mismunur
Talið mínus vænt. Mínus þýðir að vantar.
Kort
Kortasala lotunnar. Á að stemma við posauppgjör.
  1. Teldu seðla og mynt

  2. Skráðu töluna

  3. Skoðaðu mismuninn

    Ef hann er ekki 0 skaltu telja aftur áður en þú vistar.

  4. Ef þarf að leiðrétta seinna

    Í Daglok: „Leiðrétta“ → skráðu „Breyting á töldu reiðufé (kr.)“ og ástæðu. Leiðréttingin er skráð en upprunalega talningin stendur.

  5. Loka degi

    Eftir það er ekki hægt að breyta deginum.

Athugaðu: Upprunalegum færslum er aldrei eytt. Leiðrétting er ný færsla við hliðina á upprunalegu færslunni, svo alltaf sést hvað var gert.

Algeng vandamál

Það vantar peninga.
Teldu aftur. Athugaðu hvort endurgreiðsla í reiðufé eða úttekt hafi gleymst. Skráðu mismuninn heiðarlega með athugasemd.
Of mikið í skúffunni.
Oft hefur viðskiptavinur fengið of lítið til baka eða sala verið skráð sem kort en greidd með reiðufé.

Tengdar greinar

Hjálpaði þessi grein?