Heimildir: hver má gera hvað
Heimild er leyfi til að gera tiltekna aðgerð. Hlutverk er safn heimilda.
Yfirfarið við kerfið 19.10.2026
- Skrá sölu
- Nota kassann.
- Gefa afslátt / Breyta verði
- Lækka verð á sölu eða setja nýtt verð í körfu.
- Hætta við sölu
- Hreinsa körfu í vinnslu.
- Endurgreiða sölu
- Skila peningum og vörum á lager.
- Opna peningaskúffu
- Opna skúffu án sölu.
- Framkvæma kassauppgjör
- Telja reiðufé og skrá uppgjör.
- Breyta vörulista
- Bæta við, breyta og verðleggja vörur.
- Birgðatalning og flutningur
- Telja, leiðrétta og flytja birgðir.
- Leiðrétta tímaskráningar
- Allar breytingar fara í aðgerðaskrá.
Eigandi hefur alltaf allar heimildir. Bókari getur fært bókhald og endurskoðandi getur aðeins skoðað.
Starfsmaður á Laugavegi getur haft annað hlutverk þar en í Kringlunni. Aðgang má líka takmarka við tiltekna kassa.
Gott að vita: Heimildir eru athugaðar á þjóninum við hverja aðgerð. Það dugar ekki að fela hnapp. Án heimildar er aðgerðinni hafnað.
