Búkk: borðabókanir tengdar Plúsinum

Búkk er bókunarkerfi. Þegar það er tengt spyr Búkk Plúsinn hvort borð sé laust áður en bókun er staðfest.

Yfirfarið við kerfið 19.10.2026

Plúsinn ræður hvaða borð eru laus. Búkk ræður upplýsingum um gestinn og bókunarferlið.

Tvíbókanir eru hindraðar með því að Plúsinn læsir borðinu á meðan bókun er skráð. Ef tveir reyna að bóka sama borð samtímis fær annar svarið „upptekið“.

Þegar gestur kemur án bókunar og þú opnar borð í Salur varar Plúsinn þig við ef borðið er bókað fljótlega.

Bókanir dagsins sjást í Kassi → Bókanir. Reglur (lengd bókunar, bil milli bókana) stillirðu í Stillingar → Bókanir.

Tengdar greinar

Hjálpaði þessi grein?